Opið fyrir umsóknir í vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2026

Snæfellsbær óskar eftir umsóknum um störf í skemmtilegri og lærdómsríkri sumarvinnu við vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2026.

Vinnuskólinn verður starfræktur í heildina í sex vikur og er fyrir nemendur í 8. – 10. bekk og unglinga fædda árið 2009.

Starfstímabil:

  • Nemendur úr 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 8. júní – 6. júlí.
  • Nemendur úr 9. og 10. bekk starfa í sex vikur, frá 8. júní – 20. júlí.
  • Unglingar fæddir 2009 starfa frá 8. júní – 20. júlí.

Nánari upplýsingar um vinnutíma, laun og þess háttar má nálgast á upplýsingasíðu um vinnuskóla hér á heimasíðunni.

Umsóknarfrestur:

  • Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2026.

Umsóknir berist hér á heimasíðu Snæfellsbæjar.

Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.