Nýtt starf á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri auglýst laust til umsóknar

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn starfskraft í 30% dagvinnu. Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma er fyrir hendi.

Um er að ræða 3ja mánaða reynslutíma þar sem um nýtt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning og framkvæmd félagsstarfs og viðburða

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með eldri borgurum
  • Áhugi á málefnum eldri borgara
  • Þekkingu á að vinna með hópastarf
  • Jákvæðni í starfi og þjónustulund
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Samskipta- og samstarfshæfni

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 1.apríl 2026. Ráðið er í stöðuna sem fyrst, eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður í síma 865-1525 eða sigrunerla@snb.is.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.