Nýtt borðkort af Ólafsvík verður gefið út á næstu vikum
Snæfellsbær gefur á næstu vikum út nýtt borðkort af Ólafsvík.
Kortið er mikið listaverk þar sem hvert einasta hús er handteiknað og litað af glæsibrag eftir ljósmyndum og öðrum gögnum. Götukortið af Ólafsvík er í sama anda og kortið sem Snæfellsbær hefur þegar hefur gefið út af Hellissandi. Kortið er mjög nákvæmt og liggur heilmikil vinna að baki því, en þó er teikningin af Ólafsvík stílfærð að hluta til að ramma inn áningarstaði, gönguleiðir og aðra áhugaverða staði.
Kortið er teiknað af Ómari Smára Kristinssyni.
Nú hefst vinna við að fullklára kortið áður en því verður dreift til þjónustuaðila. Vilji fleiri aðilar hafa kortið hjá sér verður hægt að nálgast það í Ráðhúsi Snæfellsbæjar. Einnig er hægt að hafa samband við Heimir Berg, markaðs- og upplýsingafulltrúa, og óska eftir að fá kort til afhendingar eða stafrænt eintak í hárri upplausn til útprentunar þegar það verður tilbúið. Hægt er að senda honum tölvupóst á netfangið heimir@snb.is.