Nýr rekstraraðili að Pakkhúsinu í Ólafsvík

Í byrjun aprílmánaðar skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu í Ólafsvík.

Yevheniia opnar rekstur á næstu vikum undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi og tekur að sér að halda áfram að bjóða fólk velkomið á safnið á efri hæðum hússins. Á fyrstu hæð verður saga samfélagsins jafnframt í hávegum höfð ásamt sölu kaffiveitinga og minjagripa.

Pakkhúsið á sér auðvitað langa og merkilega sögu í Ólafsvík og ánægjulegt er að segja frá því að Hollvinasamtök Pakkhússins hafa jafnframt unnið að sýningu um verslunarsögu Ólafsvíkur sem verður aðgengileg í húsinu á opnunartíma rekstraraðila.

Með þessu framtaki er stefnt að því að Pakkhúsið verði á ný opið allan ársins hring og eru íbúar hvattir til að líta við hjá nýjum rekstraraðila, skoða verslunarsögu Ólafsvíkur og safnið á efri hæðum í okkar fallega Pakkhúsi.