Ný bæjarstjórn hefur formlega tekið til starfa

Í dag, 4. júní 2026, kom ný bæjarstjórn Snæfellsbæjar saman á sínum fyrsta fundi og hefur formlega tekið til starfa.

Á fundinum var m.a. kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, bæjarráð og nefndir sveitarfélagsins.

Auður Kjartansdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar og Júníana Björg Óttarsdóttir fyrsti varaforseti. Júníana Björg var einnig kjörin formaður bæjarráðs. Á fundinum var einnig samþykktur nýr ráðningarsamningur við Kristinn Jónasson sem mun áfram gegna starfi bæjarstjóra Snæfellsbæjar.

D-listinn lagði fram bókun á fundinum þar sem m.a. er fjallað um auðmýkt gagnvart því mikilvæga hlutverki sem þeim hefur verið falið næstu fjögur árin.

„Sú staða að listinn taki einn sæti í bæjarstjórn felur í sér sérstaka ábyrgð á að gæta fjölbreyttra sjónarmiða, að vera í góðu sambandi við íbúana og sem fyrr vinna ávallt með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Við ætlum að leggja okkur fram um að veita öfluga þjónustu við íbúa, styðja við kröftugt atvinnulíf, tryggja traustan rekstur sveitarfélagsins og halda áfram uppbyggingu sem styrkir sveitarfélagið til framtíðar. Þannig tryggjum við að Snæfellsbær sé góður, aðlaðandi og fjölskylduvænn búsetukostur.“

Á ljósmynd eru Auður Kjartansdóttir, Eiríkur Böðvar Rúnarsson, Júníana Björg Óttarsdóttir, Sigrún Erla Sveinsdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Urszula Zyskowska, Illugi Jens Jónasson og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.