Nemendur í GSNB fá frítt í sund í vetrarfríi
		
			27.02.2020 | 
							Fréttir
					
					
									
							
			
	Nú stendur yfir vetrarfrí í Grunnskóla Snæfellsbæjar og af því tilefni fá nemendur skólans frítt í sund út mánudaginn nk.
Að sama skapi er engin sundkennsla í vetrarfríinu og er sundlaugin því opin almenningi frá 07:30 - 20:30 á meðan vetrarfríið stendur yfir.
Ath: Börn yngri en 10 ára verða eftir sem áður að vera í fylgd fullorðinna.