NASA heimsækir Snæfellsjökulsþjóðgarð sunnudaginn 22. nóvember

Á sunnudaginn verður áhugaverður viðburður í Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi þegar starfsmenn frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) verða á svæðinu og hitta gesti og gangandi.
 
Dagskrá stendur frá klukkan 10:00 til 16:00 með fræðslu, kennslu og kynningu á stjörnuskoðunarbúnaði.
 
Áhugasamir hvattir til að láta þennan einstaka viðburð ekki fram hjá sér fara.
 
Nánari upplýsingar á heimasíðu Snæfellsjökulsþjóðgarðs.