Móttaka framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
08.04.2026 |
Fréttir
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl. 11:00 til kl. 12:00 í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
Skilyrði framboðslista
Samkvæmt bæjarmálasamþykkt Snæfellsbæjar, nr. 611/2013, skal bæjarstjórn skipuð sjö fulltrúum. Á framboðslista skulu því vera að lágmarki 7 nöfn og að hámarki 14 nöfn.
Framboðslista skal fylgja
-
Skrifleg yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi samþykkt að vera á listanum.
-
Meðmæli a.m.k. 20 kjósenda í Snæfellsbæ, en aldrei fleiri en 40. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista.
Nánari upplýsingar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram er að finna á kosning.is.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar