Minnisvarði um almyrkvann settur upp í Snæfellsbæ
Snæfellsbær hefur sett upp minnisvarða vegna almyrkvans sem verður þann 12. ágúst 2026.
Minnisvarðinn er ekki aðeins táknrænn, heldur mun einnig nýtast til fræðslu og upplýsinga um almyrkvann og þær einstöku aðstæður sem skapast þegar hann gengur yfir. Þannig verður til varanleg heimild um atburðinn hér í Snæfellsbæ sem íbúar og gestir geta notið og fræðst af um komandi ár.
Verkið er einnig hannað með þeim hætti að það nýtist sem „myndarammi“ þar sem fólk getur stillt sér upp og tekið myndir til minningar um þessa einstöku upplifun.
Verkið er smíðað af Vélsmiðjunni Fönix í Rifi sem á heiður skilinn fyrir vandað verk og fagleg vinnubrögð. Heimamaðurinn Anton Jónas Illugason sá um hönnun merkinga.
Með uppsetningu minnisvarðans vill Snæfellsbær varðveita minningu um þennan merka dag og tryggja að komandi kynslóðir geti kynnt sér og rifjað upp þennan stórviðburð.