Margrét Sif leysir Kristfríði Rós tímabundið af sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
27.04.2026 |
Fréttir
Margrét Sif Sævarsdóttir leysir Kristfríði Rós Stefánsdóttur af í stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á meðan sú síðarnefnda fer í fæðingarorlof.
Kristfríður Rós á von á sínu öðru barni og fer í fæðingarorlof frá og með 1. maí. Margrét Sif er mætt til starfa og nýtir fyrstu dagana í að koma sér inn í starfið með Kristfríði Rós.
Við bjóðum Margréti Sif hjartanlega velkomna til starfa og óskum Kristfríði Rós jafnframt velfarnaðar á meðgöngunni.