Listaverk í eigu Snæfellsbæjar - listaverkaskrá

Listaverk í eigu Snæfellsbæjar eru mörg og mismunandi. Listaverkin eru varðveitt í Ráðhúsi Snæfellsbæjar og öðrum stofnunum. Sum verk hafa verið keypt á sýningum og önnur fengin að gjöf.

Á heimasíðu Snæfellsbæjar er aðgengileg listaverkaskrá yfir listaverk í eigu Snæfellsbæjar þar sem koma fram upplýsingar um listaverk, listamenn og aðrar upplýsingar um tilurð verkanna í fórum Snæfellsbæjar. Töluverð skráningarvinna liggur að baki verkefninu sem er enn ekki lokið og verður sífellt í uppfærslu. Í skjalinu er hægt að smella á hlekk til að nálgast ljósmynd af verkunum.

Einnig er unnið að því að draga saman upplýsingar úr listaverkaskrá og birta með myndrænni hætti fyrir íbúa á heimasíðu Snæfellsbæjar.