Lifandi sumarstörf í boði í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Náttúruverndarstofnun auglýsir nú fjölbreytt störf landvarða og þjónustufulltrúa laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábæran hóp landvarða og þjónustufulltrúa sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum víðs vegar um landið. 

Auglýst er eftir landvörðum á láglendi og hálendi í sumarstörf ásamt þjónustufulltrúum í fjölbreytt störf í gestastofum og á tjaldsvæðum.

Snæfellsjökulsþjóðgarður heyrir undir Náttúruverndarstofnun og hvetjum við íbúa til að sækja um lifandi og skemmtileg störf í þjóðgarðinum okkar.