Leikskólinn Kríuból á Hellissandi er 40 ára og boðið er í afmælisveislu
25.03.2026 |
Fréttir
40 ár eru liðin frá því leikskólinn Kríuból var stofnaður á Hellissandi. Af þessu góða tilefni hefur verið boðað til fögnuðar miðvikdaginn 8. apríl nk í leikskólanum frá kl. 15:00 - 16:00.
Boðið verður upp á kaffiveitingar og sýningu á verkum barna ásamt því sem saga skólans verður til sýnis í máli og myndum. Þetta er frábært tækifæri til að rifja upp góðar minningar og fagna starfinu sem hefur verið unnið í gegnum árin.