Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir leikskólakennara eða þroskaþjálfa

Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leikskólakennara / þroskaþjálfa til starfa við starfsstöð skólans í Ólafsvík / Krílakot.

Starfshlutfall 80 - 100%.

Hlutverk:
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna, fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Tekur þátt í teymisvinnu innan skólans.
Kröfur:
  • Leyfisbréf sem leikskólakennari/þroskaþjálfi.
  • Áhugi á starfi með börnum og inngildandi leikskólastarfi.
  • Jákvæðni, frumkvæði og góð samskiptahæfni.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða með börnum með sérþarfir er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Hlunnindi:
  • Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum.
  • Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 31.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.

Nánari upplýsingar veitir Hermína K. Lárusdóttir, leikskólastjóri, í netfanginu leikskolar@snb.is.

Umsóknarfrestur er til 5. júní 2026.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.