Leiðbeinandi óskast í afleysingar á Krílakot
08.10.2025 |
Fréttir
Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leiðbeinanda í afleysingar á Krílakot í Ólafsvík.
Um tímabundið starf er að ræða, starfshlutfall 87%. Vinnutími er frá 8:00 - 15:00.
Hæfniskröfur:
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
- Áhugi á starfi með börnum
- Frumkvæði í starfi
Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir leikskólastjóri í síma 433 6926 á milli kl. 9-14 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2025. Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.