Laust starf við ræstingar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar
23.03.2026 |
Fréttir, Laus störf
Snæfellsbær auglýsir laust til umsóknar starf við ræstingar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar.
Starfshlutfallið er 50% og felst það í ræstingum á ráðhúsinu að Klettsbúð 4 og skrifstofurýminu í Röst ásamt umsjón með starfsmannaeldhúsi og veitingum á fundum í fundarsölum ráðhússins og frágangi eftir þá. Einnig þyrfti viðkomandi að geta leyst af í afgreiðslu ráðhússins ef á þarf að halda.
Vinnutími er á dagvinnutíma, 4 klt á dag, annað hvort fyrir eða eftir hádegi, skv. samkomulagi.
Hlutverk:
- Ræsting í Ráðhúsi og skrifstofurými í Röst
- Umsjón með starfsmannaeldhúsi
- Veitingar á fundum í fundarsölum Ráðhússins og frágangi eftir þá
- Afleysing í móttöku eftir þörfum
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 og netfanginu lilja@snb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2026. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. maí 2026.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.