Lausar stöður í eldhúsi á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri
08.07.2025 |
Fréttir, Laus störf
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar leitar að starfskröftum í eldhúsi Jaðars.
Um er að ræða 2 stöður, önnur er 58% og hin 51%. Unnið er samkvæmt vaktaplani á virkum dögum og 1 helgi í mánuði.
Stöðurnar eru báðar lausar 1. september.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af matreiðslu og vinnu í eldhúsi
- Góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoða matráð við matreiðslu á virkum dögum
- Matreiðsla 1 helgi í mánuði
- Uppvask og frágangur í eldhúsi eftir máltíðir
- Almenn þrif í eldhúsi
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður, í tölvupósti á netfangið sigrunerla@snb.is
Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.