Laus tímabundin staða kvenkyns sundlaugavarðar við sundlaug Snæfellsbæjar

Laus er til umsóknar staða kvenkyns sundlaugarvarðar við Sundlaug Snæfellsbæjar. Um 81,5% starf í vaktavinnu og tímabundna ráðningu frá 20.11.2023 - 31.01.2024 er að ræða.

Starfssvið:

  • Öryggisvarla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
  • Klefavarsla og baðvarsla.
  • Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund.
  • Tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Frekari upplýsingar veitir Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, í síma 433 9912 eða á kristfridur@snb.is.