Laus störf í Grunnskóla Snæfellsbæjar skólaárið 2026/2027
06.05.2026 |
Fréttir, Laus störf
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir starfsfólki í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár. Ráðið er í allar stöður frá 1. ágúst 2026.
Umsjónarkennarar:
- Umsjónarkennari á yngsta stig við starfsstöð skólans á Hellissandi.
- Umsjónarkennari á miðstig við starfsstöð skólans í Ólafsvík.
Kennarar:
- Íþróttakennari við starfsstöð skólans í Ólafsvík.
- Kennari á mið- og unglingastigi við starfsstöð skólans í Ólafsvík. Helstu kennslugreinar íslenska og stærðfræði.
- Kennari við Lýsudeild. Helstu kennslugreinar stærðfræði, danska, samfélagsfræði og textílmennt.
Tónmennta- og heimilisfræðikennarar í hlutastörf:
- Tónmenntakennari í 30% starf við starfsstöð skólans á Hellissandi.
- Heimilisfræðikennari í 60% starf við starfsstöð skólans í Ólafsvík.
Umsóknarfrestur um öll störfin er til 15. maí 2026.
Nánari upplýsingar um hlutverk og kröfur starfa má finna í viðeigandi auglýsingu á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.
Upplýsingar veitir Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri, í síma 894 9903 og í netfanginu lilja@gsnb.is.
Sótt er um störfin á ráðningarvef Snæfellsbæjar.