Landsmót unglingadeilda Landsbjargar í Snæfellsbæ

Það verður heldur betur líf og fjör í Snæfellsbæ næstkomandi helgi þegar landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið í bænum.

Landsmótið stendur frá 25. - 29. júní og verða um 400 manns í bænum í tilefni mótsins.

Mótssvæðið verður á Reynisvelli á Hellissandi og þar gista þátttakendur í tjöldum, en dagskrá fer fram víðar í bænum og stendur frá morgni til kvölds. Á daginn fást unglingarnir við fjölbreyttar þrautir og verkefni sem reyna á þekkingu sem þeir hafa lært í unglingastarfinu. Á kvöldin er svo skipt um gír og kvöldvökur haldnar með tilheyrandi gleði.

Unglingadeildin okkar hér í Snæfellsbæ hefur staðið í ströngu við undibúning ásamt unglingadeildinni í Búðardal og gert það með miklum glæsibrag.

Við getum ekki sagt annað en góða skemmtun!