Kraftur í Snæfellsbæ um helgina - tvö aflraunamót í Ólafsvík
Það verður sannkallaður kraftur í Snæfellsbæ um helgina þegar tvö aflraunamót fara fram við mikinn fögnuð og stemningu.
Héðinsmótið í bekkpressu fer fram í íþróttahúsinu í Ólafsvík á laugardag
Mótið er skipulagt af Sólarsport líkamsækt og er haldið til minningar um Héðinn Magnússon. Mótið var endurvakið árið 2024 og nýtur mikilla vinsælda, en það hefur verið haldið árlega síðustu ár. Dómari er Magnús Ver Magnússon. Mótið hefst kl. 13:00 á laugardaginn og keppt verður í eftirfarandi flokkum.
- Ungmennaflokkur (undir 18 ára)
- Kvennaflokkur
- Karlaflokkur (undir 100 kg)
- Karlaflokkur (yfir 100 kg)
Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram á laugardag og sunnudag
Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram laugardaginn 13. júní og sunnudaginn 14. júní. Um er að ræða kraftakeppni kvenna sem fram fer í Snæfellsbæ og Stykkishólmi annað árið í röð. Keppt verður í einni grein í Ólafsvík laugardaginn 13. júní og fleiri greinum sunnudaginn 13. júní.
Þetta er í þriðja skipti sem keppnin er haldin og hafa margar af sterkustu konum landsins tekið þátt ásamt völdum erlendum kraftakonum. Mikil ánægja hefur verið með keppnina undanfarin ár og eru fleiri keppendur skráðir til leiks en áður og engu til sparað í undirbúningi vegna keppnarinnar. Mótið er tekið upp og verður sýnt á RÚV.
Hér í Snæfellsbæ hefst keppni í aflraunagrein í sundlaug Snæfellsbæjar seinni partinn á laugardaginn. Á sunnudag verður keppt í nokkrum greinum í nágrenni við íþróttahúsið í Ólafsvík. Áætlun gerir ráð fyrir að keppni hefjist um hádegi á sunnudag en nákvæmar tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur, m.a. á Instagram-síðu Fjallkonunnar. Keppni lýkur fyrir heimaleik Víkings Ólafsvíkur gegn Magna sem hefst kl. 16:00.
Við hvetjum íbúa til að fjölmenna á báðar keppnir og styðja við bakið á keppendum.
