Kjörfundir í Snæfellsbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
24.08.2026 |
Fréttir
Kjörfundir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið verða á eftirfarandi stöðum í Snæfellsbæ þann 29. ágúst 2026.
Ólafsvíkurkjördeild
- Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík, Ennisbraut 11.
- Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00.
Hellissands- og Rifskjördeild
- Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi, Keflavíkurgötu 2.
- Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00.
Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild
- Kjörfundur verður haldinn í Lýsudeild Grunnskóla Snæfellsbæjar í Staðarsveit.
- Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00.
--
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í kosningum.
Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa skilríki meðferðis á kjörstað.