Innritun í tónlistarskóla fyrir haustönn 2025

Innritun í skólavistun Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fyrir haustönn 2025 hófst 18. ágúst. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans að Hjarðartúni 4-6 í Ólafsvík. Einnig er hægt að senda tölvupóst: tonlistarskoli@snb.is

Nemendur sem eru að ljúka árið 2025 þurfa að staðfesta áframhaldandi skólavistun fyrir haust 2025, og ef breytingar eru á hljóðfæranámi.

-

Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu, þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra.

Hálft nám reiknast sem 60% af fullu gjaldi.

Í þeim tilvikum sem systkini yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur skal nema 25% fyrir annað systkini og 50% fyrir þriðja systkini. Afslátturinn reiknast ávallt af ódýrasta náminu.

Systkinaafsláttur á eingöngu við um systkini, ekki frændsystkini, þó svo lögheimili og greiðandi sé sá sami.

Athugið: Við innritun hefur forráðamaður skuldbundið sig til að greiða skólagjöld út önnina.

Skólastjóri Tónlistarskólans Snæfellsbæjar