Hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 26. mars 2026
20.03.2026 |
Fréttir
Fimmtudaginn 26. mars 2026 verður hunda- og kattahreinsun í Áhaldahúsinu í Ólafsvík sem hér segir:
- Hundahreinsun verður fimmtudaginn 26. mars frá kl. 13:00 – 16:00.
- Kattahreinsun verður fimmtudaginn 26. mars frá kl. 16:00 – 17:00.
Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.
Eigendum óskráðra hunda og katta er bent á að skrá þá þegar í stað. Viðeigandi eyðublöð má finna hér að neðan.
Við hvetjum fólk til að mæta með hunda og ketti í hreinsun, hvort sem þeir eru skráðir eða óskráðir.
- Eyðublöð: