Hátíðardagskrá í tilefni af Þjóðhátíðardeginum 17. júní 2026
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður að vanda haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ.
Þjóðhátíðarveislan teygir anga sína víða um bæinn og ættu allir að geta gert sér glaðan dag með fjölskyldu og vinum.
Eru íbúar hvattir til að halda upp á daginn með vinum og fjölskyldu og skreyta heimili og garða með fánum og öðru í fánalitunum. Að vanda verður þjóðbúningurinn í öndvegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúning til að sýna sig og sjá aðra.
Gleðilega hátíð, kæru íbúar.
Dagskrá:
Kl. 8:00 Íslenski fáninn dregi að húni
Kl. 10:00 Landsbankahlaup við Landsbankann í Ólafsvík.
- Ís í boði í Sjoppunni Ólafsvík að loknu hlaupi.
Kl. 10:30 Hesteigandafélagið Hringur teymir undir börnum í reiðhöllinni
Kl. 11:30 Skrúðganga í Sjómannagarðinn í Ólafsvík frá íþróttahúsinu.
Kl. 11:45 Hátíðardagskrá í Sjómannagarðinum.
- Setning: Erika Rún Heiðarsdóttir
- Kynnir: Ari Bent Ómarsson
- Ávarp fjallkonu
- Helgistund
- Ræða nýstúdents: Stefanía Klara Jóhannsdóttir
- Tónlistaratriði: Vigdís Júlía Viðarsdóttir
- Menningarviðurkenning Snæfellsbæjar
Kl. 13:00 Kaffiboð á Hótel Búðum.
Kl. 13:00 Skemmtun við íþróttahúsið
- Hoppukastali
- Sirkus Íslands
- Ungmennafélag og meistaraflokkur Víkings verða með leiki og þrautir
- Unglingadeildin Dreki verður með sjoppu
Kl. 15:00 Froðufjör með slökkviliði Snæfellsbæjar við Gilið í Ólafsvík.
- Ath: viðburður fer eingöngu fram ef veður leyfir.
Kl. 17:00 Grillveisla við Ólafsvíkurrétt í boði sjálfboðaliða sem komu að endurgerð gömlu fjárréttarinnar.
Auk þess er shoot-out golfmót Golfklúbbsins Jökuls á Rifsvelli. Skráning og tímasetning á GolfBox.
Sundlaugin í Ólafsvík er opin frá 10:00 - 17:00.
Lýsulaugar eru opnar frá kl. 11:00 - 21:00.