Halloweenpartý í Röstinni 5. nóvember
30.10.2026 |
Fréttir
Félagsmiðstöðin Afdrep, nemendaráð GSNB, ungmennaráð Snæfellsbæjar og menningarnefnd Snæfellsbæjar bjóða í hrollvekjandi hrekkkjavökuparty fimmtudaginn 5. nóvember í Röstinni á Hellissandi. Það verður eitthvað fyrir alla og vonandi fullt af fjöri, hlátri og smá hrolli.
Opið á eftirfarandi tímum:
- 1.-4. bekkur: Opið frá kl. 16:30-17:30.
- 5.-7. bekkur: Opið frá kl. 17:30-18:30.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Draugahús fyrir þau sem þora!
- Föndur og sköpun
- Grasker
- Skemmtilegir leikir
- Sjoppa
Við hvetjum krakkana til að mæta í Halloweenbúningum ef þau vilja, en það er að sjálfsögðu ekkert skilyrði.
Allur aldur er velkominn! Foreldrar, systkini, ömmur og afar eru líka hjartanlega velkomin að kíkja við og taka þátt í gleðinni.
Við hlökkum mikið til að sjá sem flesta og eiga saman skemmtilega og draugalega stund!