Hafnir Snæfellsbæjar auglýsa eftir starfsmönnum til sumarafleysinga

Hafnir Snæfellsbæjar auglýsa eftir tveimur starfsmönnum til sumarafleysinga við Ólafsvíkurhöfn og Rifshöfn. Viðkomandi munu einnig þurfa að vinna við Arnarstapahöfn. Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára gamlir.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026 og skulu sendar til hafnarstjóra.

Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri í síma 433-6922 og 883-1212. Einnig á netfanginu doddi@snb.is.

Hafnarstjóri