Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2026/2027
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstig í fullt starf frá 1. ágúst 2026.
Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 220 nemenda grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík (5. - 10. bekkur), á Hellissandi (1. -4. bekkur) og á Lýsu (1. - 10. bekkur). Við skólann starfar vel menntað og hæft starfsfólk. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur áherslu á átthagafræði. Allar starfstöðvar flagga Grænfána.
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Hafa umsjón með daglegu skólastarfi sem tengist viðkomandi umsjónarhópi.
- Vera tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlú að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
- Leyfisbréf
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
- Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu skólans. Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur til 15. maí 2026. Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.
Nánari upplýsingar veitir Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri, í síma 433 9900 og netfanginu lilja@gsnb.is.