Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stig

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stig fyrir næsta skólaár.

Hlutverk:
  • Að annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Að hafa umsjón með daglegu skólastarfi sem tengist viðkomandi umsjónarhópi.
  • Að vera tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn.
  • Að fylgjast með velferð nemenda, hlú að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
  • Að taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Kröfur:
  • Leyfisbréf
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar
  • Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Hlunnindi:
  • Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 31.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.

Umsóknarfrestur er til 3. júní 2026.

Nánari upplýsingar má finna í viðeigandi auglýsingu á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.

Upplýsingar veitir Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri, í síma 894 9903 og í netfanginu lilja@gsnb.is.

Sótt er um störfin á ráðningarvef Snæfellsbæjar.