Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða í Ólafsvík
10.12.2025 |
Fréttir, Laus störf
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða við starfsstöðina í Ólafsvík, 70% stöðugildi, frá 5. janúar 2025.
Starfssvið skólaliða:
- Þrif á skólahúsnæði og skólalóð starfsstöðvarinnar
- Gæsla í frímínútum og matartímum
- Leiðbeina nemendum í leik og starfi
- Ýmis önnur verkefni sem falla til hverju sinni
Menntun, reynsla og hæfni:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 18. desember.
Upplýsingar veitir Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri, í síma 894 9903.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.