Götulýsing slökkt í Snæfellsbæ vegna almyrkva

Götulýsing í Snæfellsbæ verður slökkt miðvikudaginn 12. ágúst á meðan almyrkvi á sólu stendur yfir.

Með því að slökkva á götulýsingunni er leitast við að draga úr birtu í bænum og skapa sem bestar aðstæður fyrir íbúa og gesti til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð.

Íbúar sem vilja njóta myrkvans í sem mestu myrkri eru jafnframt hvattir til að huga að útilýsingu við heimili sín og slökkva á ljósum sem kunna að kvikna sjálfkrafa.