Góðgerðardagar í Grunnskóla Snæfellsbæjar - opið hús 19. mars
12.03.2026 |
Fréttir
Góðgerðardagar hefjast í Grunnskóla Snæfellsbæjar þriðjudaginn 17. mars.
Tilgangurinn með góðgerðardögunum er að láta gott af sér leiða, vekja athygli á mikilvægi góðgerðar- og samkenndar og styrkja góð málefni í samfélaginu. Þessa daga vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum sem verða seld á opnu húsi og mun ágóðinn renna til Lilju Daggar Gunnarsdóttur, fyrrverandi nemanda skólans.
Góðgerðardögum lýkur svo með opnu húsi í húsakynnum skólans í Ólafsvík fimmtudaginn 19. mars kl. 16:00.
Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæjar taka vel á móti bæjarbúum á opnu húsi, hafa gleði og bjartsýni í fyrirrúmi og breiða út jákvæðan boðskap um samfélagið.
Allir velkomnir!