Gleraugnasöfnun Lions stendur yfir í október
02.10.2026 |
Fréttir
Október er sjónverndarmánuður Lions.
Lionshreyfingin á Íslandi safnar gleraugum sem kunna að liggja ónotuð en geta komið öðrum að gagni. Við sendum þau frá okkur til Danmerkur þar sem þau verða flokkuð og löguð ef með þarf og send áfram til þeirra sem á þurfa að halda.
Ránarkonur eru búnar að setja söfnunarkassa í Apótekið og Kassann.
Með fyrirfram þökk.
Lionsklúbburinn Rán.