Garðsláttur fyrir ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega í Snæfellsbæ

Rétt til garðsláttar eiga ellilífeyrisþegar, 70 ára og eldri, og örorkulífeyrisþegar með lögheimili í Snæfellsbæ. Umsækjendur skulu hafa fasta búsetu í eign sinni.

Slegið er að meðaltali einu sinni í mánuði á tímabilinu júní - ágúst ár hvert. Þjónustan felst í að því að grasflatir innan skilgreindra lóðamarka eru slegnar og gras hirt og fjarlægt. 

Árið 2025 var reglum um garðslátt breytt með þeim hætti að sækja þarf um garðslátt fyrir hvert sumar. Ekki verður slegið nema umsókn liggi fyrir.  Umsóknir um garðslátt skulu berast í gegnum neðangreindan hlekk.

Hlekkur á umsókn um garðslátt. 

Reglur: