Gámar eru ekki leyfðir í Snæfellsbæ nema að gefnu leyfi frá sveitarfélaginu
Snæfellsbær vill árétta að gámar eru ekki heimilir á lóðum eða öðrum svæðum innan sveitarfélagsins nema að gefnu leyfi frá sveitarfélaginu.
Að gefnu tilefni eru eigendur og umráðamenn gáma hvattir til að kanna hvort stöðuleyfi sé fyrir hendi. Á þetta við alla gáma sem staðsettir eru á einkalóðum eða í landi Snæfellsbæjar. Samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar þarf stöðuleyfi fyrir gám sem stendur lengur en tvo mánuði utan svæðis sem sérstaklega er ætlað til geymslu gáma. Sé gámur án tilskilins leyfis er eigandi hvattur til að hafa samband við tæknideild Snæfellsbæjar til að kanna með stöðuleyfi eða hvort fjarlægja þurfi gáminn.
Markmiðið er að gefa eigendum kost á að óska eftir leyfi eða sækja um pláss á skilgreindu svæði sem sveitafélagið hefur útbúið við malarnámuna á Rifi. Verði ekki brugðist við innan tilskilins frests munu eigendur gámanna eiga von á því að þeir verði fluttir á gámasvæðið á Rifi á kostnað eigenda.
Stöðuleyfisgjöld eru innheimt samkvæmt gildandi gjaldskrá sveitarfélagsins, með vísan til 51. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og kafla 2.6 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Rétt er að benda á samþykkt bæjarstjórnar Snæfellsbæjar sem veitir byggingarfulltrúa heimild til að innheimta gjöld af gámum sem standa í leyfisleysi, hvort sem er innan lóðar viðkomandi eða í landi sveitarfélagsins.
Hafðu samband við tæknideild Snæfellsbæjar í gegnum netfangið byggingarfulltrui@snb.is fyrir 31. júlí n.k til að fá nánari upplýsingar og leiðbeiningar. Einnig er hægt að sækja um stöðuleyfi í gegnum þjónustugátt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Byggingarfulltrúi Snæfellsbæjar