Fyrri umræða um ársreikning Snæfellsbæjar fyrir árið 2025

Á 400. fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl. var ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu.
 
Í stuttu máli má segja að rekstur Snæfellsbæjar hafi komið mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 630 m.kr. á meðan rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 416 m.kr. Þetta er besta afkoma Snæfellsbæjar frá upphafi, þrátt fyrir að framkvæmdir og fjárfestingar í sveitarfélaginu hafi jafnframt verið meiri á árinu 2025 en áður.
Snæfellsbær fjárfesti á árinu 2025 fyrir um 954 m.kr., þar af voru fjárfestingar A-hluta um 496 m.kr. Helstu framkvæmdir sveitarfélagsins voru í gatnaframkvæmdum, hafnarframkvæmdum og viðhaldi og endurbótum á húsnæði stofnana Snæfellsbæjar.
 
Veltufé frá rekstri var 660 m.kr. og í samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var 950 m.kr.
 
Handbært frá rekstri var 596 m.kr. hjá A-hluta og 429 m.kr.. hjá samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta. Þessi tala gefur vísbendingar um hæfni Snæfellsbæjar til að greiða skuldir og standa undir nauðsynlegum fjárfestingum á árinu.
 
Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.467 m.kr. og í samanteknum ársreikningi um 1.668 m.kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding A-hluta 761 m.kr. en hjá samstæðunni 818 m.kr. Langtímaskuldir Snæfellsbæjar lækka stöðugt, enda hafa ný langtímalán ekki verið tekin á undanförnum árum.
 
Skuldahlutfall Snæfellsbæjar er lágt, eða 55,6% hjá A-hluta og 50,9% hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta. Ef notað er skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, þá fer prósentan niður í 35,2% fyrir A-hluta og 28,72% fyrir samstæðuna.
 
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 7. maí næstkomandi.