Fundaröð vegna sjóbaða við Krossavík á Hellissandi - tækifæri í heimabyggð

Vakin er athygli á fundaröð á Snæfellsnesi vegna tækifæra sem felast í sjóböðum við Krossavík á Hellissandi.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi undanfarin ár og miðar vel. Á fundunum verður verkefnið kynnt og farið yfir tækifæri og fjárfestingamöguleika.

  • Langaholt kl. 16:00, fimmtudaginn 11. júní 2026
  • Sögumiðstöðin í Grundarfirði kl. 20:00, fimmtudaginn 11. júní 2026
  • Bókasafn Stykkishólms kl. 12:00, föstudaginn 12. júní 2026

Áhugasamir hvattir til að fjölmenna.