Framlengdur framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga
10.04.2026 |
Fréttir
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Frestur til að skila framboðslistum rann út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Einungis eitt framboð skilaði inn lista.
Skv. 29. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 framlengist framboðsfrestur því um tvo sólarhringa.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar mun veita framboðslistum móttöku sunnudaginn 12. apríl 2026 frá kl. 11:00 - 12:00 í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
Skilyrði framboðslista
Samkvæmt bæjarmálasamþykkt Snæfellsbæjar, nr. 611/2013, skal bæjarstjórn skipuð sjö fulltrúum. Á framboðslista skulu því vera að lágmarki 7 nöfn og að hámarki 14 nöfn.
Framboðslista skal fylgja
-
Skrifleg yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi samþykkt að vera á listanum.
-
Meðmæli a.m.k. 20 kjósenda í Snæfellsbæ, en aldrei fleiri en 40. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista.
Nánari upplýsingar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram er að finna á kosning.is.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar