Fræðsludagur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga 29. september 2026
29.09.2026 |
Fréttir
Í dag er fræðsludagur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga haldinn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá hefur verið skipulögð sem tekur yfir alla félags- og skólaþjónustu á Snæfellsnesi.
Dagskrá:
Kl. 09:00 – Mæting
Boðið verður upp á gríska jógúrt, croissant, hafraklatta, kaffi og vatn.
Kl. 09:30 – Soffía Ámundadóttir
Erfið mál og ofbeldi
Kl. 10:30 – Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir og fleiri
Barnavernd og tilkynningar
Kl. 11:15 – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir
Úr skólahöfnun í skólatengsl
Kl. 12:15 – Hádegishlé
Boðið verður upp á kjúklingasúpu, brauð og fleira.
Kl. 13:00 – MEMM, Tinna Sigurðardóttir
Tví- og fjöltyngi
Kl. 14:00 – Guðrún Snorradóttir
Jákvæð samskipti
Kl. 15:00 – Fundarslit