Fjölbreytt og skemmtileg sumarvinna hjá Snæfellsbæ

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar.

Um er að ræða hvort tveggja útivinnu við Áhaldahús Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa.

Almennar kröfur fyrir sumarvinnu:

  • 100% störf í þrjá mánuði.
  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
  • Umsækjendur þurfa að vera drífandi, duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
  • Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.

Almennar kröfur vegna flokkstjóra:

Starfið hefur það að leiðarljósi að leiðbeina ungmennum Snæfellsbæjar við fyrstu skrefin í atvinnulífinu og í leiðinni fegra bæinn okkar.

  • 100% störf í þrjá mánuði.
  • Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
  • Verkvit til að leiðbeina og vinna með krökkum í vinnuskóla og sumarvinnu við allskonar útivinnu.
  • Umsækjendur þurfa að vera færir um að stýra vinnuskólahópi og hafa áhuga á að vinna með og fræða ungmenni.
  • Umsækjendur þurfa að vera drífandi, duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
  • Góð færni í íslensku.
  • Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.

Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum. Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar.

Athugið að auglýsing um laus störf í vinnuskóla verður auglýst sérstaklega.