Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar og stofnana 2027

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar fyrir árið 2027.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki.

Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026.

Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni.

Athugið, að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og bæjarstjórn samþykki þá.