Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar og stofnana 2026
20.10.2025 |
Fréttir
Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar fyrir árið 2026.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki.
Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 10. nóvember 2025.
Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2025 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni.
Athugið, að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og bæjarstjórn samþykki þá.