Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust starf félagsráðgjafa
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa, eða einstakling með sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
Um er að ræða 100% stöðugildi og laun skv. kjarasamningum félagsráðgjafa. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af störfum í barnavernd. Um er að ræða þvarfaglega vinnu þvert á Snæfellsnesi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Barnavernd
- Þverfagleg teymisvinna
- Almenn félagsráðgjöf
- Önnur tilfallandi vinna
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi frá Landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi
- Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til 27. janúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingveldur Eyþórsdóttir, forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, í síma 430 7800 eða netfanginu ingveldur@fssf.is.
Skriflegar umsóknir þar sem fram kemur menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum umsagnaraðila berist skrifstofu FSS, Klettsbúð 7, 360 Snæfellsbæ eða á netfangið ingveldur@fssf.is.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga áskilur sér rétt til að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.
Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.