Faglegt og skapandi leikskólastarf í leikskóla Snæfellsbæjar - fréttir frá leikskólanum
Faglegt og skapandi leikskólastarf í leikskóla Snæfellsbæjar - innra mat og innleiðing menntastefnu Snæfellsbæjar
Virðing, vinátta og gleði eru leiðarljós í starfi Leikskóla Snæfellsbæjar. Lögð er áhersla á að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem hvert barn fær að njóta sín, þroskast og læra í leik. Virðingin birtist í því að hlustað er á börnin og tekið mið af þörfum þeirra, vináttan í umhyggju, samvinnu og jákvæðum samskiptum og gleðin í leik, sköpun og fjölbreyttum viðfangsefnum.
Til að tryggja að þessi gildi og markmið skólans og sveitarfélagsins birtist raunverulega í daglegu starfi þarf innra mat að vera vel skipulagt og markvisst. Innra mat er tæki skólans til að meta gæði starfsins og kanna hvernig gengur að vinna að stefnu hans og markmiðum. Þar eru bæði markmiðin sjálf metin og þær leiðir, starfshættir og verklag sem notuð eru til að ná þeim.
Matið byggir á fjölbreyttum aðferðum og gögnum. Með könnunum, skráningum, gæðaviðmiðum og samtali við börn, starfsfólk og foreldra fæst heildstæð mynd af starfinu. Þannig má meðal annars skoða hvort börnin upplifi öryggi og virðingu, hvort jákvæð tengsl og vinátta séu efld og hvort leik- og námsumhverfið veki gleði, forvitni og sköpun. Niðurstöðurnar sýna hvað vel er gert og hvar tækifæri eru til frekari umbóta.
Á undanförnu ári hafa verið stigin mikilvæg skref í að festa slíkt vinnulag í sessi. Endurskoðun innra mats hófst vorið 2025 og skólaárið 2025–2026 starfaði gæðaráð sem fundaði reglulega og stýrði matinu samkvæmt árs- og langtímaáætlun. Niðurstöður innra mats í lok skólaársins 2025-2026 sýna jákvæða stöðu. Niðurstöðurnar voru settar fram í skýrslu innra mats í júní og tækifæri til umbóta í umbótaáætlun fyrir skólaárið 2026–2027. Skýrslu og umbótaáætlun má kynna sér á heimasíðu leikskólans.
Þessi vinna skapar traustan grunn fyrir innleiðingu Menntastefnu Snæfellsbæjar 2026–2031 sem samþykkt var í sumar. Framtíðarsýn hennar er um faglegt, skapandi og metnaðarfullt mennta- og uppeldisstarf þar sem gæðanám, vellíðan og farsæld hvers barns eru í öndvegi. Eitt af meginmarkmiðum stefnunnar er að gæði séu í forgrunni og að kerfisbundið innra mat styðji samstarf, upplýsta ákvarðanatöku og stöðugar umbætur.
Næstu skref eru að flétta markmið menntastefnunnar inn í skólanámskrá, starfsáætlanir og innra matsáætlanir og fylgja umbótaaðgerðum markvisst eftir. Þannig segir menntastefnan og áherslur leikskólans hvert skal stefna, gildin hvernig unnið er og innra matið hvort starfið skili þeim gæðum sem stefnt er að. Leikskóli Snæfellsbæjar er umbótamiðaður leikskóli sem sífellt reynir að gera betur með því að koma auga á styrkleika og tækifæri til umbóta gegnum vel skipulagt mat á leikskólastarfinu.
Leikskólakveðja frá stjórnendum Leikskóla Snæfellsbæjar
Nánar: