Ertu búin að nýta gjafabréfið frá Snæfellsbæ?
04.06.2026 |
Fréttir
Á síðasta ári tók Snæfellsbær upp nýtt fyrirkomulag við jólagjafir starfsfólks og færði starfsfólki gjafabréf hjá verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu.
Í Snæfellsbæ er ríkuleg og fjölbreytt þjónusta í boði og gaman er að segja frá því að rúmlega 700 gjafabréf hafa verið notað hjá fleiri en 20 fyrirtækjum í Snæfellsbæ.
Gildistími gjafabréfa er til og með 30. júní 2026. Er það starfsfólk sem enn á eftir að nýta gjafabréfin sín hvatt til gera það núna í júnímánuði.