Sundlaug lokuð vegna viðhalds 9. og 10. nóvember 2026

Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík verður lokuð 9. og 10. nóvember vegna viðhalds.

Á lokunartíma verður unnið að fjölbreyttum viðhaldsverkefnum á sundlaugarbúnaði og skipt um vatn í lauginni.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda gestum.