Bókun forseta bæjarstjórnar á síðasta fundi núverandi bæjarstjórnar
Síðasti fundur núverandi bæjarstjórnar var haldinn fimmtudaginn 7. maí síðastliðinn. Af því tilefni kom forseti bæjarstjórnar með eftirfarandi bókun:
„Bæjarfulltrúar D-listans vilja við lok þessa kjörtímabils færa bæjarfulltrúum J-listans einlægar þakkir fyrir afar gott samstarf á liðnum árum í bæjarstjórn.
Meiri- og minnihluti hefur meðal annars unnið sameiginlega að fjárhagsáætlanagerð á kjörtímabilinu og lítill ágreiningur hefur verið um þau verkefni sem farið var í. Gott samstarf í bæjarstjórn er mikilvægur hlekkur í að ná fram góðum rekstri og að veita góða þjónustu hjá sveitarfélaginu. Takk fyrir ykkar mikilvæga framlag til samfélagsins.
Ekki síst viljum við þakka þeim aðilum sem hafa setið lengi í bæjarstjórn, Fríðu Sveinsdóttur sem hefur setið í bæjarstjórn í 17 ár og Birni H. Hilmarssyni sem setið hefur í 12 ár.“
Umboð núverandi bæjarstjórnar rennur út 15 dögum eftir kjördag, eða 31. maí nk.. Eftir það tekur ný bæjarstjórn við keflinu.
Bæjarstjóri og bæjarritari taka undir þessa bókun og þakka bæjarfulltrúum fyrir afar gott samstarf.
Meðfylgjandi ljósmynd var tekin á 400. fundi bæjarstjórnar þann 9. apríl sl. við fyrri umræðu um ársreikning Snæfellsbæjar fyrir árið 2025. Á myndina vantar Jón Bjarka Jónatansson og Patryk Zolobow.