Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsmanni í aðhlynningu

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu. Um er að ræða 50% vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða íbúa við almenna umönnun og félagslegar þarfir
  • Verkefni samkvæmt dagsplani vaktar

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Sjúkraliðanám er æskilegt en ekki skilyrði
  • Reynsla í umönnun er mikill kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Starfsmaður þarf að hafa náð 18 ára aldri
  • Stundvísi og metnaður í starfi

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður í síma 865-1525 eða sigrunerla@snb.is.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðunni.