Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsfólki í afleysingar
08.08.2025 |
Fréttir, Laus störf
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsmönnum í afleysingar. Um vaktavinnu er að ræða.
Hæfniskröfur:
- Kunnátta í íslensku er skilyrði
- Jákvæðni og stundvísi
- Áhugi á samskiptum við íbúa og umönnun aldraðra
Á Jaðri er starfsumhverfi gott og gefandi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður, í tölvupósti á netfangið sigrunerla@snb.is
Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.