Drög að nýrri menntastefnu Snæfellsbæjar - óskað eftir ábendingum frá íbúum

Fræðslunefnd Snæfellsbæjar ákvað haustið 2025 að hefja vinnu við endurskoðun menntastefnu Snæfellsbæjar. Skipaður var stýrihópur og ráðinn verkefnastjóri frá Ásgarði skólaráðgjöf.
 
Verkefnið er að greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í sveitarfélaginu og móta framtíðarsýn til næstu ára með skýrri stefnu og innleiðingaráætlun. Verkefnið gengur vel og nú óskar stýrihópurinn eftir ábendingum íbúa við drög að endurskoðaðri stefnu sem má nálgast hér að neðan.

Í vor er áætlað að ljúka endurskoðun með nýrri menntastefnu ásamt aðgerðaráætlun til innleiðingar sem hefst í haust.

Stýrihópur um endurskoðun menntastefnu Snæfellsbæjar hvetur íbúa til að rýna vel í drögin og koma ábendingum á framfæri við verkefnastjóra.
 
Ábendingar má senda á netfangið gunnthor@ais.is fyrir lok dags 27. apríl 2026
 
Nánar: